Ég var að lesa grein um GTA í Fréttablaðinu og þá hafði einhver paranoid mamma bannað stráknum sínum að kaupa GTA, eða, skilaði honum eftir að hann var búinn að kaupa hann. Svo seinna í greininni voru þau að tala um ofbeldið og sögðu að maður fengi hrós fyrir að drepa konur og börn… það eru ekki einu sinni fokking börn í leiknum. Þetta á að vera raunverulegur leikur og auðvitað eru konur í honum og það er alveg hægt að drepa þær eins og karlmenn en það er mesta fokking kjaftæði í heimi að maður fái hrós fyrir það. Maður fær bara hrós ef að maður drepur dópsala eða klíkumeðlimi og það er ekki EIN kona í þeim hópi. Þetta er bara heimskir óvitar og ættu ekki að vera að tjá sig um þetta ef þeir vita ekki sjitt um þetta.