Einu sinni var ég að horfa á Dirty Sanchez á MTV og einn kall stakk nál í gegnum typpið á sér, það atriði var alveg ó-sensúrað.

Svo fyrir stuttu var ég að horfa á Myth Busters á Discovery, þeir voru að kanna hvort að það væri satt að maður gæti fengið straum í sig ef maður pissaði á lestarteina. Þeir tóku gínu, fylltu hana af einhverju sem líktist hlandi, settu slöngu til þess að vökvinn gæti lekið út á lestarteinana. Svo settu þeir laufblað (grafískt) fyrir slönguna, þannig að maður sæi ekki að það hún væri að pissa.

Kommon! Má maður ekki sjá lekandi slöngu bara af því að hún er tæknilega séð að líkja eftir typpi?!
5