Allt er að verða vitlaust eftir að Hive.is skaut upp kollinum, þannig að ég gat ekki stillt mig og tók því til bragðs og sendi minni netþjónstu rafpóst um fyrirætlanir þeirra. Auðvitað kipptu þeir sér strax við þessu hjá Hive mönnum og komst ég að því að mínir menn munu á næstunni:

* Hækka alla vöruflokka sína og breyta vöruframboði sínu.
* auka innifalið gagnamagn en þeir eru að skoða það eins og er.
* bjóða, eins og Hive.is allt að 20 mb tengingu og buðu þeir mér það jafnvel strax og spurðu jafnframt hvaða verð ég væri til í að sjá hjá þeim!

Þannig að ljóst er að spennandi tímar eru framundan í þessari samkeppni, og hvað risana tvo varðar, Símann og OgVodafone, þá verður gaman að sjá hvort þeir bjóði okkur ekki uppá ennþá betra! ;)
-axuz