Vantar blóð í Blóðbankann - MBL.is

Skapast hefur mikil og rík þörf fyrir blóðhluta hjá sjúkrahúsunum vegna sjúkdóma, bráðra veikinda, aðgerða og slysa á síðustu dögum og vikum. Blóðbankinn biður fjölmiðla um aðstoð við að kalla inn blóðgjafa. Þegar Blóðbankinn sendir áskorun af þessu tagi, þá eru ríkar ástæður að baki.

Blóðbankinn sinnir heilbrigðisstofnunum um land allt. Á þessum árstíma reynist Blóðbankanum oft erfitt að halda uppi nægum blóðhlutabirgðum. Mikið hefur verið notað af rauðkornum, blóðvökva (plasma) og blóðflögum síðustu dagana. Rauðkorn og blóðvökvi eru notuð við aðgerðir og slys. Blóðflögur eru gjarnan notaðar í stórum aðgerðum, en ekki síst sem stuðningsmeðferð við krabbameinssjúka. Það er því mikilsvert að Blóðbankinn eigi nægar birgðir þessara blóðhluta á hverjum tíma.

Blóðbankinn leggur sérstaka áherslu á að fá virka blóðgjafa í öllum blóðflokkum til að koma.

Næstu daga er Blóðbankinn opinn sem hér segir:
Miðvikudagur 24 nóv. 8-17
fimmtudagur 25.nóv. 8-19
föstudagur 26.nóv.8-17
mánudagur 29.nóv. 8-19

____________________________________________

Mig hefur alltaf langað til þess að gefa blóð alveg frá því ég var krakki, því miður get ég það ekki út af vissum reglum hjá þeim um hæfni blóðgjafa.

Svo það minnsta sem maður getur gert er að hjálpa þeim að auglýsa þetta, hvet alla Huga meðlimi sem að hafa réttan aldur og kynhneigð að fara og gefa blóð.

P.s. hvað er málið að hafa lokað um helgar ?