Ég er búin að brjóta heilan seinustu 2 mínúturnar yfir þessum 2 dularfullu stigum sem ég var að fá. Já það var bara þannig að ég var í góðum fýling að svara hugurum og hvað sé ég, stigin mín sem fyrir 6 mínútum voru 2.184 voru allt í einu 2.186! Ég vissi ekki hvað ég ætti að gera í þessu og hvaðan þau komu. Mér líður dálítið illa að hafa 2 stig sem ég vann ekki fyrir og vil helst skila þeim, er einhver notandi þarna úti sem að var að tapa 2 stigum. Ég er búin að brjóta heilan í ca. 3 mínútur núna(liðið smá síðan ég skrifaði þetta fyrir ofan) og ég bara átta mig ekki á því hvaðan þessi stigu komu!

Dettur einhverjum í hug hvaðan þau geta hafa komið ? Ég er í öngum mínum yfir þessu og líður hræðilega. Ég veit ekki hvað ég á að gera og ég ætla taka það fram að ég fékk ekki þessi 2 stig fyrir þennan kork, ég verð kominn með 2.188 þegar þetta kemur inn…úff ætli ég fari ekki að borða eitthvað og leggist í þunglynd…