Jæja, þetta er núna að gera mig alveg brjálaða. Ég er ein af þeim sem hringir frekar en að senda sms skilaboð, en þetta skil ég ekki. Ég vissi að ég ætti nógan pening inn á inneigninni minni, og ætlaði að hringja í vin minn. En hvað kemur upp á? Ég barasta á enga inneign!
Ég furðaði mig á þessu og tékkaði hvort þetta væri rétt. Svarið sem ég fæ er “Á inneign þinni eru 20 krónur. Á sms sérreikningi eru 3.210 krónur”

Hvað í andskotanum?! Og þessi peningur gildir víst bara í mánuð í viðbót. Ég get ekki einu eytt þessu í sms-leiki; þegar ég sendi í þá er tekið af aðalinneigninni. Hvaða helvítis asni fann upp á þessu?! >(