Ég er ekkert á móti því að fólk sé með svona hvítar tennur.. en…

ÉG ÞOLI EKKI þegar að kvikmyndir um t.d. kúreka eða bara einstaklinga í gamla daga, hafi fólk með alveg skærhvítar tennur. Sérstaklega þegar það er verið að eyða miklum pening í búninga ög make-up, að gleyma litlu atriði eins og tennum. Það er EKKI erfitt eða dýrt að láta leikarana vera með gervitennur yfir tökur.

Ég bara missi allan trúverðuleika á svona myndum að sjá kúreka og indiána vera með týpískar Hollywood tennur. Er ég sá eini sem að tek alltaf eftir þessu ?