Ætla smá að röfla hérna! <röfl>

Mér er illt í maganum
Mér er illt í hausnum
Ég er kvefuð!

Við fórum að skipta á gamla afruglaranum okkar og nýja digital ísland! En nei fengum við þá ekki bara gallaðan! Fórum þá aftur með nýja og vildum fá gamlan aftur. Gaurinn í búðinni segir okkur þegar við erum BÚIN að fá gamla aftur: þið getið bara horft á Stöð 2, Sýn og Bíórásina með þessu.. [en ekki allt fjölvarpið sem við ERUM AÐ BORGA FYRIR] ooooog við urðum svakalega pirruð og ætluðum að labba út, þá aðallega vegna dónskapsins í starfsfólkinu [sem var alveg nógu duglegt við að gera lítið úr okkur]. Var þá ekki búið að læsa búðinni og við gátum ekki opnað (mjög aulalegt!) Afgreiðslumaðurinn opnar þá fyrir okkur og segir eitthvað sem gerir okkur ennþá pirraðri! Gaaaaman

Mér leiðist

Og já.. ég er að fara í próf á morgun :( </röfl>


————————————————-