Þetta er svo mikið djöfullsins svindl, ég er með væga spilafíkn sjálfur, og tek þátt í nánast öllum leikjum sem ég rekst á (hef líka samtals unnið svona 8 tölvuleiki, 5 DVD myndir og ég veit ekki hvað og hvað) og reyndi þess vegna við þetta. Ég sendi skeyti og þá stendur "því miður, þú ert Nr. 5, 11 hver vinnur). Þá reyndi ég aftur og aftur, þetta fór hringinn og ég varð Nr. 3. Beið aðeins þangað til þetta varð átta. Sendi svo eftir smá stund og var Nr. 10, þá sá ég að næsti yrði vinningur, og sendi STRAX annað skeyti. En nei, ég vann ekki, þá reyndi ég aftur, þangað til þetta fór í Nr9, og sendi þá TVÖ skeyti sem hefði átt að tryggja mér vinninginn. En nei nei, það gerðist ekki. Þetta er svind. Ég eyddi 2.000 kalli í þetta…ég hef reyndar eytt mikið meiri pening en það í kassa en samt <_<

Svo er alltaf verið að hækka þetta, nú er hægt að vinna San Andreas og hvert skeyti kostar 200 kall. Og 12 hver vinnur. Svona smátt og smátt að gera þetta erfiðara.

Þetta er allt svindl, 12 hver vinnur ekki, það er örugglega frekar 12 hver af 12 hverjum sem vinnur.