sælir hugarar.
ég á miða á airwaves hátíðina en ég er bara 16 ára.
ég var að velta því fyrir mér hvernig þetta verður þá, það er sagt að það sé 20 ára aldurstakmark. Samt sagði einhver að það færi eftir stöðunum, þ.e. Nasa kann að hafa 20 ára aldurstakmark en þjóðleikhúskjallarinn ekki, svo að þetta 20 ára aldurstakmark gildir í raun og veru ekki fyrir alla hátíðina.
Getur einhver sagt mér hvaða staðir eru með 20 ára aldurstakmark. (ég er af landsbyggðinni og ég þekki ekki þessa staði).
Ég vona að ég þurfi ekki að selja miðann ef að staðirnir ætla ekki að hleypa mér inn….
takk takk