Alltaf þegar ég er að lesa greinar hérna þá rekst maður alltaf á einhvern sem er að setja út á allt og alla. Til dæmis þegar fólk biður um lista yfir vinsælustu böndin sín þá byrjar þetta vel en svo kemur alltaf einhver sem setur út á sem einhver annar sagði c´mon þetta er hans val ekki ykkar. Þetta er bara lítið dæmi af öllu vælinu sem er hérna á huga. Maður sér þetta ekki á erlendum síðum þar er fólki leyft að hafa sína skoðun í friði! Ég er ekki að segja að það sé bannað að hafa aðra skoðun á hlutum en mér finnst leiðinlegt þegar fólk er kaffært í leiðindar commentum yfir því að þetta sé ekki gott og annað er betra þetta er persónubundið. Þannig að í guðanna bænum hættið þessu djöfulsins væli.