Ég skora á Deilismenn að koma hubbunum upp aftur sem fyrst. Þetta er hrein og klár vitleysa. Það er svo mikið sem gefur okkur rétt eða tilefni til þess sem við notum þessa þjónustu fyrir.

Ég hef aldrei farið jafn oft í bíó né keypt jafn marga geisladiska eins og nú.
Ég ætla að vera á þessum höbb framm í rauðann dauðann!
Þeir ættu nú frekar að eltast við eitthvað “ólöglegt” eins og barnaklám.

En neiiiiiii! þeir eru að ráðast inní, eða réttara sagt “brjóta friðhelgi” feitra kókdrekkandi sveittra tölvunörda sem eru að skiptast á skrám. Nei hingað og ekki lengra!!

Þetta er eins og þú átt bíl! Þú berð ekki ábyrgð á því sem einhver annar hefur notað bílinn í. Ef það eru einhver ólögleg gögn á tölvunni minni þá veit ég ekkert um þau. Getur vel verið að einhver einhvertímann hafi náð í þetta í partýi!

Síðan var ég líka bara með Rec óvar í gangi þegar ég var að hlusta á útvarpið … Ég ætlaði ekki að taka upp lög.. ég var að taka upp þögnina inní herberginu mínu


Ekki ætla ég að gefast upp fyrir þessum anskotans STEF lýði.. Anskotans kommúnisma djöfull. Þetta á nógan pening fyrir (feitu kvikindin eru bókstaflega að drukna úr pening)…Eins og kom fram í fréttum áðan þá var enginn af þessum einstaklingum að græða á þessu.

Ég skora á Deilir að opna aftur fyrir þjónustuna sem þeir veita. Ég nota hana nefnilega bara til þess að tala á main chattinu.