Einn mesti hryllingur sem ég hef séð í langan tíma og varð fyrir gífurlegum vonbrigðum!
Will Ferrel er frábær leikari en annað eins flopp hef ég aldrei séð frá kappanum! USSSS!!

Ég ætla bara vona að aðrir geti skemmt sér betur á henni heldur en ég og er ég feginn að hafa ekki eytt krónu í þessa mynd! Þvílíkur viðbjóður! Ég vil fá þessa tvo klukkutíma sem ég sóaði í þennan sora! :(
Ég meina, ég er allur fyrir aulahúmor stöku skiptin en Guð minn góður! Þetta er all-time-low í þeim flokki!

Lokaorð: krakkar og gelgjur, skemmtið ykkur vel! ÞIÐ eigið eftir að fíla þessa.
-axuz