Ókey, ég er kannski algjör nöldrari en ég bara get ekki þolað að hlusta á Nylon!

Ég hef ekkert á móti þessum stelpum nema hvað þær halda að þær séu ofurfrægar sem þær eru ekki og syngja gelgjulegra en 14 ára táningsgelgja ;)

Ég bara get ekki að því gert en mig langar að berja hausnum við vegginn í hvert skipti sem ég heyri lag með þeim…