Ég kom hérna inn á Huga fyrir svona þremur mínútum síðan, vitandi það að verið væri að lagfæra hann. Og mér leist strax vel á það sem ég sá. Svo fór ég í mína daglegu skoðunarferð um forsíðukorkana og furðaði mig á því hvað margir væru að nöldra yfir því hvað nýja útlitið væri ljótt og ömurlegt og gallað.
Og núna ætla ég sumsé að nöldra yfir þeim sem eru að nöldra yfir því hvað nýji Hugi sé ljótur.
Er ég virkilega sú eina sem finnst hann líta vel út?!? Þetta er visulega ekki flottasta síða í heimi en lets face it, þetta er ekki ljótasta og gallaðasta síða í heimi heldur.
Vildi bara koma þessu á framfæri.