Ég hef nú ekki verið lengi á Huga, en á þessum stutta tíma hef ég tekið eftir einu sem fer alveg rosalega í mig. Það er skítkast. Það er alveg merkilegt að fólk skuli nota þennan miðil til að munnhöggvast hver við annan! Ég er ekki að segja að allir eigi að vera vinir, eða eitthvað svoleiðis ævintýra bull, en ef þið þurfið endilega að rakka einhvern annan niður, notið þá FREKAR skilaboðin. Ég er viss um að ég tala fyrir hönd okkar allra þegar ég segist ekki vilja lenda inná einhverju tveggja manna rifrildi þegar ég er að lesa korkinn á td. Börnin Okkar.

vamanos