Gott kvöld góðir Hugarar,

Áðan sá ég ljósið og ákvað að gera eitthvað gott - ekki bara eitthvað gott fyrir sjálfan mig, heldur fyrir alla heimsbyggðina. Þannig er nú mál með vexti að einn félagi minn gaf mér Marlboro sígarettupakka með einni sígarettu í áðan. Sjálfur reyki ég ekki, og datt mér því frábær hugmynd í hug.

Ég ætla að fylla þennan sígarettu pakka - s.s. setja 19 fleiri sígarettur í hann og selja hann og setja peningana í safnbauk Rauða-Krossins. Þetta gæti tekið daga, vikur, mánuði eða ár - en ég ætla engu að síður að standa við mitt í þessum efnum.

Fyrir þá sem vilja heita á mig þá geta þeir sent mér skilaboð með fullu nafni, fjárhæð, netfangi og kennitölu (og e.t.v. gsm síma) og ég sendi daglega af mér fréttir og myndir til þeirra.

Ef mér tekst þetta á 15 dögum sendi ég þeim aðilum sem vildu taka þátt reikningsnúmerið sem ég á og þeir greiða sína skuld.

Allur ágóði sem safnast í áheitunum fer einnig óskiptur til Rauða Krossins.

btw. þá er <b><a href="http://hrannar.gsmblogg.is/20040819213948.jpg“>hérna</b></a> mynd af pakkanum

Takk fyrir mig - vonandi heita sem flestir á mig.<br><br><font color=”#31ADC4">
-
I don't care if monday's blue;
tuesday's grey and wednesday too;
thursday I don't care about you;
it's friday I'm in love.

Monday you can fall apart;
tuesday wednesday break my heart;
thursday doesn't even start;
it's friday I'm in love.
-
<b>The Cure - Friday I'm in love</b></font