Nú þegar helgin alræmda (verslunnarmannahelgin) rennur í hlað er nauðsynlegt fyrir ykkur öll að hafa varan á…

Alltof algengt er að nauðgarar og aðrir perrar fari af stað - vitandi að um allt land verða útúr drukkin ungmenni sem ekkert geta gert sér til varnar og eru því auðveld fórnarlömb kynferðisglæpamanna …

Það eina sem hægt er að gera til að “þér” eða þínum verði ekki nauðgað - er að þið standið saman um að verja vini ykkar …
Þá á ég við að þið hafið auga með hvert öðru - gætið þeirra sem eru á ferðinni með ykkur - ekki skilja eftir áfengisdauða vinkonu eða vin nema í öruggum höndum einhvers sem treystandi er!!!

Skiptið ykkur að ef ykkur finnst eitthvað grunsamlegt í gangi - en verið samt mjög varkár því nauðgarar og annað glæpahyski geta verið vopnum búið. Gerið strax einhverjum vaktmanni/lögreglu/öryggisverði eða einhverjum fullorðnum viðvart ef ykkur sýnist eitthvað grunsamlegt í gangi…

Verið sannir vinir/vinkonur - og hugsið um þá sem þið ferðist með - vitandi að vinir/vinkonur ykkar gera það sama fyrir ykkur!!!

Kveðja:
Tigercop sem persónulega hefur stöðvað tvær nauðganir um æfina og heldur áfram að sýna sanna takta sem sannur vinur vina sinna!<br><br>Hugi.is