Sælir góðu hugarar

Í 4 ár hef ég verið að klífa upp hina ýmsu ofurhugalista með því að senda inn vel skrifaðar greinar og korka. Þetta hefur kostað mikið strit og miklar fórnir en hefur skilað einhverjum árangri enda er ég ofurhugi á þremur áhugamálum. Það er aftur á móti ekki nóg og hef ég hægt og sígandi nálgást mitt æðsta takmark, ofurhugalistan á forsíðunni.

Nú er aftur á móti svo komið að tveir óþekktir einstaklingar þeir Olgeir og Witch King eru komnir ofarlega á þennan lista. Þetta eru einstaklingar sem ekki hafa sent inn neina vel skrifaða grein og hafa eftir minni bestu vitund ekkert sér til ágætis*. Þarna eru þeir samt sem áður á toppi ofurhugalistans og spyr maður sig hvað þeir hafa gefði okkar háttvirtu vefstjórum í stað þessara bónusstiga**.

Mér blöskrar við tilhugsunina og lýsi fyrirlítningu minni á svona vinnubrögðum. Þetta rýrir trúverðugleika þessa ágæta miðils og setur allt stigakerfið í uppnám. Því krefst ég þessa að ábyrgur vefstjóri sjái sóma sinn í að segja af sér***.

Virðingarfyllst
Sigþór Bessi

—–
* Ég þekki þessa náunga ekkert og því veit ég ekkert hvað þeir hafa sér til ágætis.
** Ég hef engar heimildir fyrir að vefstjórar okkar hafi tekið við mútum í neinu formi.
*** Ég vona að þetta sé allt uppspuni og þar af leiðandi að þessi ábyrgi vefstjóri sé ekki til enda hafa allir vefstjórar okkar unnið gott ósérhlíft starf.
—–<br><br><a href=“mailto:mail@bessi.org”>Bessi</a> | <a href="http://bessi.org">bessi.org</a