jaaaaaaaaaaaaaaamm… þessi mynd er rusl! Það er gjörsamlega ekkert varið í hana þar sem lítið sem ekkert spennandi gerist í henni, einstaka atriðið og brandarar, og ekki mikið aksjón miðað við 90 mínútna kvikmynd og er söguþráðurinn jafn þunnur og köngulóavefur! Þetta er bara enn eitt hollywood ruslið sem þarf að andskotast til að gera kvikmynd eftir þunnu handriti

Svona fyrir þá sem hafa séð hana.. hvað fannst ykkur um ritstjórann, persónulega hefði ég viljað að það mætti sleppa þessum fábjána.. eða amk breyta persónunni verulega! það mætti halda að hann sé bara þarna til að pirra fólk, alltaf segjandi ömurlega ‘brandara’ sem koma hver á eftir öðrum sem gerir þetta ekki fyndið heldur virkilega pirrandi..

En þetta voru mínar skoðanir á þessari rusl mynd, spiderman 2, og mæli ég ekki með henni! neeeeeeeema þið viljið eyða 800kr í eitthvað sem er ekki einu sinni góð afþreying!

endilega segið ykkar álit líka ^^