Ég fór inná rokk áhugamálið áðan eins og ég hef oft áður gert, og ætlaði að drepa tímann. Ekki var mér þó kápan úr því klæðinu þar sem eitthvað var öðruvísi en venjulega. Innan skamms sá ég hvað hafði gerst. Hugi hafði gert villu. Mér leist nú aldeilis ekki á blikuna þegar ég tók eftir því hvað þetta var sem fyrir mér blasti, já það er rétt, það var skilaboðaskjóða. Það var ekki mín skilaboðaskjóða. Ég fékk áfall og brast í grát og hef ekki ennþá náð að jafna mig. Hvað gengur eiginlega á? Hefur einhver annar lent í þessu? Ég var ekki innskráður þegar þetta gerðist. :(

(já, þetta er ósköp tilgangslaus póstur hjá mér, en ég vildi bara deila þessu með ykkur.)<br><br>&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;
<i>One day your life will flash before your eyes,
make sure it's worth watching</i>
&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;&#9604;