Var maður að fylgjast með fréttunum í dag og gat maður ekki komist hjá að heyra fréttina um stúlkuna er hafði verið stungin til bana og síðan hafði drengur og móðir hennar verið stungin líka.Fór maður síðar á textavarpið og las sér til um þetta og kom þar setning sem mér er en minnisstæð.Stóð þar að stúlkan hafði verið útskurðuð látinn og strákurinn og móðirinn á spítalanum og kom þar líka fram að talið var að ekki hefðu fleiri átt aðild að málinu.Má því segja að einhver þeirra,sem sagt drengurinn,móðirin eða dóttirin að einhver þeirra hafi tekið sér hníf í hendi og hreinlega stungið þau öll,þannig að síðan hafi sú manneskja er hafi stungið hin stungið sig sjálfa/n með hnífnum í lokinn.Kemur sonurinn eða mamman sterklega til greina.Síðar í dag kom það fram að móðirinn hafði verið færð í varðhald uns málinu lýkur.Verður hún að sitja þar þar til 14.júní og verður henni gert að sæta geðrannsókn og grunar lögreglan hana sterklega um að hafa orðið dóttur sinni að bana.Eru þetta sláandi fréttir og vonar maður að svona muni ekki henda oft í framtíðinni.