Allt í lagi enginn spoiler… þeir sem vilja ekki vita hver vinnur áhorfendamilljónina EKKI LESA FRÉTTABLAÐIÐ því þar var einmitt grein um hver vann hana… Konan sem skrifaði þessa grein sagðist hafa horft á Survivor og séð tiltekna manneskju vinna milljónina. Dreg ég það stórlega í efa að hún hafi horft á þáttinn því eins og þeir sem horfðu á Survivor vita þá var ekki sagt hver vann. Þetta er í annað sinn sem svona lagað gerist, um daginn var sagt frá því hver ynni í Bachelor og nú þetta… Hvað er eiginlega málið? Fara þeir á cbs.com og ná í upplýsingar þaðan um stöðuna í þáttunum eða eru þeir bara að reyna að eyðileggja fyrir SkjáEinum…
Vonandi fær þetta að lifa