Voðalega er leiðinlegt að lesa greinar, svör við greinum og korka hérna á Huga. Fólk gerir í því að skrifa hlutina vitlaust. Það er ekki lesblinda að nota T í staðinn fyrir Þ.
Hvað græðir maður eiginlega á því? Þetta er svo mikil óvirðing gagnvart tungumálinu. Síðan er líka svo leiðinlegt að lesa þetta.

Endilega reynið hvað þig getið að fara með rétt mál. Líka að renna rétt yfir textann áður en hann er sendur.

Það væri líka fínt að fá tungumálaáhugamál hingað. Það gæti eflt íslensku kunnáttu margra hérna um til muna. Ef maður er kannski ekki viss á einhverjum orðum eða þýðingu. Síðan er líka gaman að tala önnur tungumál eða læra.

Allaveganna fer ég alltaf í vont skap þegar ég les svona bull… tha for eg i baeinn og keipti mer sleigjó.