Hæ og hó!

Q:Stelpur og tölvuleikir. Góð blanda?

A:Nee… strákar spila tölvuleiki!


Þetta svar fengi maður hjá mörgum manninum ef maður myndi spyrja þá hvort
stelpur og tölvuleikir ættu saman. Ég er hins vegar annarrar skoðunar á málinu.

Ástæðan fyrir því að ég rita þessa grein ku vera sú að um daginn er skóla lauk sá
ég tvær bekkjarsystur mínar vera á rabbi skammt frá mér. Ég er nú með eyru og
hljóðhimnu og beinin hamar, steðja og ístað í eyranu svo ég komst ekki hjá því að
heyra hvað þær sögðu (þannig að ekki ásaka mig um hlerun) . Samtalið var
nokkurn veginn á þessa vegu. Köllum aðra L og hina V:

L: “Hey, gætirðu kannski komið heim til mín á eftir, ég keypti nefnilega nýjan leik í
PlayStation 2 í gæ…”
V: “SSSSSSSSSSSSSSSSSSSHH!! Ekki tala svona hátt!”
L: “Afhve… óóó, já, ég skil…”

Ha? Sjáið þið þetta? V þaggaði niður í L því hún var að tala um að hún væri með
nýjan tölvuleik heima hjá sér. HVAÐ ER Í GANGI?

V sagði L þá að passa sig og strunsaði svo í átt að hurðinni. Ég hljóp á eftir og
ávarpaði hana og dró hana svo afsíðis og spurði hana afhverju hún hafi sussað á L
því L var að tala um tölvuleik. V sagði þá að það væri asnalegt að stelpur væru i
tölvuleikjum. Þetta var kornið sem fyllti mælinn. Ég gekk rakleitt heim, fleygði
töskunni út í horn og settist við tölvuna. Ég byrjaði að leita að “girls playing video
games” og skoðaði. Kannanir leiddu í ljós að fleiri stelpur en fólk héldi spilaði
tölvuleiki. Flestar stelpur reyna að fela það að þær spili tölvuleiki og eru oft með
mikið system i gangi til að sporna þvi að fólk kæmist að því að þær spiluðu
tölvuleiki.

….

……….

……………

Afhverju i andsk****** ætti mér að vera illa við einhverja stelpu bara út af því að
hún spilar tölvuleiki?

Ég las áfram og komst að þvi að stelpur vildu helst ekki láta stráka vita það því þá
“héldu þeir að þær væru einhver tölvufrík” .

Ég hefði ekkert á móti því að eiga kvenkyns vin sem hefur áhuga á tölvuleikjum!
Þvert á móti! Ég yrði bara ánægður!

Hins vegar eru til stelpur sem fela það ekki. Þær stelpur eru til fyrirmyndar og ég
lít upp til þeirra. T.d. wolfgirl hér, hún viðurkennir það að spila tölvuleiki og sýnir
enga iðrun í því að stunda það.

Stelpur! Takið wolfgirl til fyrirmyndar! Segið að þið spilið tölvuleiki! NÚNA!

LPFAN

PS. Luftgítar… ég dansa ekki… vává… stelpur dansa…