Bandarískur drengur lifði af morðtilraun föður síns með því að þykjast vera dauður. Maðurinn drap móður drengsins og særði son sinn skotsári áður en hann beindi byssunni að sjálfum sér. Aaron Kinard var að borða smákökur og drekka mjólk þegar faðir hann skaut móður hans á sunnudag. Drengurinn, sem varð níu ára á mánudag, lá hreyfingarlaus á gólfinu uns faðir hans skaut sjálfan sig.
Aaron hjólaði síðan heim til fjölskylduvinar. „Ég sá blóð á handleggnum á honum og hann sagði mér að báðir foreldrar sínir væru látnir, að hann hafi séð pabba sinn skjóta mömmu sína í bakið og síðan skjóta sjálfan sig í höfuðið,“ segir Blanche Cuccia, ein af nágrönnum drengsins. „Hann var greinilega í sjokki. Það var eins og hann vildi gráta en það komu engin tár.“

Svo virðist sem Oscar Lawrence, 83 ára, hafi myrt móður drengsins, Anita Kinard 44 ára, vegna rifrildis.

„Drengurinn var mjög snjall. Þegar hann heyrði hitt byssuskotið og föður sinn falla til jarðar, hljóp hann af stað. Það er ótrúlegt að barn á þessum aldri geti haldið sönsum í kringumstæðum sem þessum,“ segir Mitch Dattilo lögreglumaður.

Tekið Af http://www.mbl.is/

<br><br><font color=“lime”>_____________________________________________</font>

<b><font color=“green”>I mean, isn't that just kick-you-in-the-crotch
-spit-on-your-neck fantastic
</font></b> <font color=“blue”> - Rachel þegar að Ross kom með Julie heim frá Kína :P</font>
_____________________________________________
<b>For the love of god take that off!</b>
<font color=“maroon”>- Ross við Joey í 8.þætti í 10.seríu :D</font>
———————————————
<font color=“red”>kærlig hilsen, Ripp :o)</font>
———————————————
I mean, isn't that just kick-you-in-the-crotch