Þessi saga sannar það hvað kínverjar eru brjálaðir í borðtennis… ég vil taka það fram að þessi saga er sönn. Hún gerðist í kína fyrir einhverjum mánuðum, ég man það ekki alveg.

En það sem gerðist var það að evrópumeistarinn var að fara í alþjóðlegt mót í kína og þegar hann kom í íþróttahúsið þá mætti hann 3 klukkutímum of snemma. En í höllini sá hann einhvern kínverja vera að slá kúlu í vegg, og hann spyr “eigum við ekki að taka einn upphitunarleik?” “Jájá” segir kínverjinn. Kínverjinn rústaði honum 11-1 og evrópumeistarinn segir “Vááá, númer hvað ertu á þessu móti?” “Ha? móti?? ég þríf hérna”

Þetta er alveg ótrúlegt :D<br><br>Thorin.