Jæja kæru notendur, þá er komið að því. Ég vil fá:

1. <b>Tilnefningu</b>, þar sem þið nefnið hugarann sem þið viljið að sé kosinn hugari ársins.

2.<b> Ástæðu</b>, þar sem þið skilgreinið ástæðuna fyrir ykkar vali. Og gerið þið það, ekki nefna sjálf ykkur eða einhverja vini ykkar sem enginn veit um, ég vil fá alvöru tilnefningar.

Fyrstu verðlaun eru ársbirgðir af styrjuhrognum og kampavíni, auk þess sem hann fær afnot af tveimur völdum kvenmönnum úr kvennabúri JReykdals.

Önnur verðlaun er DV frá því í gær.

Þriðju verðlaun er svekkelsi yfir því að hafa stundað huga eins og brjálæðingur en enda samt í þriðja sæti.<br><br><a href="http://www.hvurslags.blogspot.com">Ósnotur maður
hyggur sér alla vera
viðhlæjendur vini.
Þá það finnur
er að þingi kemur
að hann á formælendur fáa.

<i>Hávamál</i></a