Jæja, þegar ég vaknaði í morgun heirði ég að búið væri að ná Saddam Hussein, ég trúði því nú varla, en eftir því sem ég las meira um málið fór ég að trúa því að það væri búið að handtaka hann. Svo í hádeiginu horði ég beina útsendingu af fréttafundi um handtöku Saddams. Jæja, allt leit vel út og ég farinn að trúa því að þeir hefðu ná kallinum, en svo þegar ég sé myndirnar af honum kemur mjög skrítinn svipur á mig.

ÞEIR HANDTÓKU JÓLASVEININN ?!?!?!

Ég vissi að Bush væri slæmur, en aldrei hefði mér dottið í hug um að hann vildi losa sig við jólasveininn.

Helgi Pálsson