Ég var að koma af básúnunámskeiði þar sem ég tek paratíma með bróður mínum og vorum við báðir með glænýjar strípur, og þá meina ég að við vorum í dag kl. 3. í strípum og massa flottri haircut. En allavega, þá erum við að koma niður hjá World Class þarna rétt hjá Grensás á Honda Civic sem bróðir minn á og þá kemur gaur með sígarettu í annarri og gemsa í hinni og klessir á okkur, gaurinn keyrir í burtu, og áður en við sjáum númerið hjá honum felur hann bílnúmeraplötuna með einhverju tæki sem hylur bílnúmerplötur. Ég varð massa slakur og horfði uppí löftið og sönglaði “..Bæ bæ bæ bæ bæ..” með N'Sync (gott lag til að raula þegar mikið bjátar á) og bróðir minn keyrir heim. Þessi gaur var pott þétt FM-hnakki, þetta síða-hár sem hann var með og þessi “I'm a metalhead” bolur…ekki spurning, þetta var eðal verzlingur. En ég, með mitt ljósastípuhár, í tjokkóbuxum og þröngum bol, ég er ekki FM-hnakki.

Ef þið sjáið gaur á Subaru Impreza og í áður rituðum fötum, látið mig vita með raf-pósti.

HrannarM.

[-Net-póstur-] - [-HrannarM.Tk-] - [-Upplýsingar-]