Les einhver “blogg” síðuna mína? Svo vill til að það sem er á þessari blessaðri síðu er langt frá því að vera blogg, eiginlega er það á algerlega öndverðan máta. En nú vantar mig hugmyndir að efni til að setja á síðuna. Ég hef ekki uppfært lengi lengi, og fyrst að (vonandi) einhver les þessa þvælu, þá langar mig til að halda henni áfram. Ætli einhver hérna úti lumi á góðri kveikju að skemmtilegri smásögu?<br><br><a href="http://www.hvurslags.blogspot.com">Ósnotur maður
hyggur sér alla vera
viðhlæjendur vini.
Þá það finnur
er að þingi kemur
að hann á formælendur fáa.

<i>Hávamál</i></a