OK! Ég var að fá e-mail um að taka við einhverri sendingu af helling af peningum (15,5 milljón dollara) frá einhverjum gaur sem segist vera einhver gaur frá Líberíu, og segist eiga í hættu að bankareiknungurinn hans verði frystur og bla bla bla. Hann er að biðja mig um að fá að senda þetta hingað og ég eigi að taka við þessu og geyma þetta fyrir hann þangað til hann kemur og sækir þetta…
Ég var bara að spá í hvort e-r hefur fengið þetta sama mail eða e-ð svipað, ekki það að ég sé að gleypa við þessu, en bara að spá hvort þetta sé e-ð algengt.