Ég var ekki alveg viss hvert ég átti að setja þessa grein þannig að ég set hana bara á forsíðuna.

Í FANGELSI fær maður 3 fríar máltíðir á dag.
Í VINNUNNI fær maður pásu fyrir 1 máltíð-sem maður þarf að borga sjálfur.

Í FANGELSI fær maður að fara fyrr út fyrir góða hegðun.
Í VINNUNNI fær maður meiri VINNU fyrir góða hegðun.

Í FANGELSI er maður sem opnar og lokar öllum hurðum fyrir mann
Í VINNUNNI þarftu að gera það sjálfur

Í FANGELSI má maður horfa á sjónvarpið og verið í tölvunni.
Í VINNUNNI þú verður rekinn.

Í FANGELSI fær maður sitt eigið klósett
Í VINNUNNI þarf maður að deila með öðrum

Í FANGELSI mega vinir og vandamenn koma í heimsókn
Í VINNUNNI ekki sjéns í helvíti.

Í FANGELSI borga skattgreiðendur allt fyrir þig
Í VINNUNNI Þarftu í fyrsta lagi að borga til að koma þér í vinnuna, og svo er tekið 40% af þér í skatt….til þess að borga fyrir fangana.

Fangaklefi er að meðali 2-4 fermetrum stærri en meðal skrifstofa á
Íslandi!!

Nú er bara að velja!!