Sælt veri fólkið
Ég sé í könnuninni hér á Huga að 37% af ca 1500 manns segjast vera hlynntir innrás bandaríkjamanna inn í Írak. Ég er persónulega ekki hlynntur þessari innrás og mér finnst að fólk sem er ekki af írösku bergi brotið, hreinlega ekki hafa rétt til þess að segjast hlynnt þessu rugli. Ef íraska þjóðin myndi segja “já endilega sprengið okkur í tætlur, við erum tilbúin til þess að fórna nokkur þúsund mannslífum til þess að losna við Hussein!” þá liti þetta öðrvísi út. En þarna er fólk einsog ég og þú sem bað ekki um þetta. Þarna er fólk sem er að deyja, örkumlast, missa fjölskylduna sína og heimili.

Þeir sem styðja þetta stríð.. setjið ykkur í spor þessa fólks á myndunum og segið mér samviskulaust að þið styðjið þetta stríð!

http://www.robert-fisk.com/iraqwarvictims_mar2003.htm