Ég skrifa yður frá Danmörku hinni dejligu vegna afar brýns máls.
Það er kominn tími til að sparka föööking Íslendingunum hér úr landi. Ég er reyndar Íslendingur og hef enn þennan íslenska ríkisborgararétt þó langt sé síðan ég flúði land afþví það er ekki verandi á þessu landi sults og eymdar sem stjórnvöld hafa gert það sem Ísland er orðið, auk þess sem fólkið er orðið þröngsýnt og fordómafullt, ég lenti til dæmis á slysadeild vegna viðbragða nágranna minna þegar ég flaggaði danska fánanum í garðinum mínum á 17.júní ásamt fána konungsvelissinna sem ég hannaði sjálfur fyrir tilvonandi stjórnmálaflokk. Það er ekki glæpur , er það?! Er ekkert einstaklingsfrelsi á Íslandi?!

En aftur að efninu, best að taka smá hlé til að anda, reiðin er að ná tökum á mér við að rifja þetta upp, hamúrjæangjekó hamúræjangjekó, úfffffffff, úffffffff, anda djúpt, jæja ég er búinn að jafna mig!:)

Það sem ég vildi vekja máls á er að Íslendingar í Danmörku eru að koma vondu orði á Íslendinga! Þeir tala margir illa um Dani og Danmörku á mannamótum þegar þeir eru orðnir fullir, sýna hroka gagnvart danska, fagra, ylhýra tungumálinu, sem lætur í eyrum eins og dýrindis franskur koss ,tungan komin alveg niður í kok og maður er hreinlega að kafna úr ást! Þannig hljómar hin fagra danska!!!!!!!!!!!!

Það er svívirða og viðurstyggð hin soralegasta af löndum mínum í Danmörku, landi konunga, að dirfast að tala illa um Dani sem veita þessum aumu flóttamönnum undan fátækt á Íslandi skjól.
Hér fá þeir hærri laun og betra kerfi, sem sagt er sumir misnoti sem er auðvitað dýpri og þyngri sorg fyrir okkur góðu Íslendingana í Danmörku sem elskum Danmörku en tárum taki!

Flestum Dönum er vel við mig, en þó er kvartað undan hroka annara Íslendinga. Ég hef útskýrt hvernig Íslendingar fylltust þessum hroka gegn Danmörku þegar hið illa stórbændasamsæri kennt við “sjálfstæðis” baráttu plataði saklausa Íslendinga til að svíkja frændur vora og gerast konungssvikarar! Þetta vekur góð viðbrögð hjá Dönum og ég er kominn með marga meðlimi sem eru Danir og búa í Danmörku í flokkinn minn “Flokk konungssinna”, sem er enn í mótun en verður athyglisvert innlegg í stjórnmálabaráttuna á Íslandi!

Mér er þó meira sama um hrokan heima en hér í Danmörku og legg til að vísa öllum hinum hrokafullu löndum okkar, sem dirfast svo jafnvel að gera grín að nöfnum Dana, Rassmussen og slíkum virðulegum, hljómfögrum dönskum nöfnum, og hinu fagra ástríðufulla máli þeirra sem slær frönsku, ítölsku og spænsku út í ástríðuhita sínum og hljómar eins og einhver ná ekki andanum af ást, með tungu niðri í koki í afar dönskum kossi. Og ekki þarf að kvarta yfir veðrinu hér og þó væla þessi grey hér stanslaust undan “heimþrá” sem er auðvitað ekki vinsælt og ég veit ekki hvort það er bragð til að láta bjóða sér í partý afþví fólk vorkenni manni eða bara óforskömmuð, ódönnuð svívirða og yfirgangur, en eitt er víst, þessu fólki verður ekki boðið í partý hjá okkur konungssinnum og við hvetjum alla vanþakkláta íbúa í Danmörku til að snúa heim aftur í kuldan og fátæktina!


Lengi lifi konungdæmið!
Stöndum vörð um ímynd Íslendinga í Danmörku.
Burt með fööking vanþakkláta íslenska innflytjendur!

Yðar auðmjúki brottflúni landi,

Strikið