Mig langar til þess að segja ykkur kæru Hugarar frá hræðilegu lífi einnar 19 ára stelpu sem ég þekki sem lagt var í rúst af 40 stjúpfeðri hennar! Þetta byrjaði allt þegar hún var 5 ára þegar að móðir hennar byrjaði að vera með öðrum manni en föður hennar, þau skildu og eftir u.þ.b. mánuði eftir það var maðurinn fluttur innn.
Líf þessarar saklausu stelpu byrjaði ekki vel, pabbi hennar var fluttur út og nýji “pabbinn” var farinn að misnota hana illilega!
Öll þau ár frá því að hún var 5 ára misnotaði hann hana á kynferðistlegan hátt. Sál hennar var innilokuð, hjarta hennar var kramið og búið var að leggja líf þessarar fallegu stúlku gjörsamlega í rúst!
12 ára ákvað hún svo að þetta væri einhvað sem að hún gæti ekki innbyrgt sjálf. Hún talaði við mömmu sína og sagði henni frá öllu saman en mamma hennar sagði þetta bara vera algjört bull, hún hefði alltaf verið á móti þessum manni og að hún kæmist sko ekki upp með það að eyðileggja samband þeirra hjóna með einhverri svona lygasögu!!!
Frá 12 ára aldri-18 ára lét hún þetta lýðast og leyfði honum að komast upp með þetta. Það var ekki fyrr en hún var 18 ára að hún fór heim til pabba síns og sagði honum alla söguna frá upphafi til enda! Allir voru eyðilagðir yfir þessu og ákvað fjölskyldan í sameiningu að kæra manninn.
Réttarhöldin stóðu lengi yfir og um 19 vitni voru með stelpunni og aðeins 1 manneskja stóð með manninum það var mamma stelpunnar!
Maðurinn fékk ekkert á sig vegna þess að stelpan hafði logið einhverju að dómaranum. Hún vildi ekki að öll fjölskylda hennar (sem sat í salnum) myndi frétta það að hún hefði verið í dópi frá 14-16 ára aldurs(sem er skiljanlegt vegna þessa alls).Núna er þessi maður giftur mömmu hennar þau eiga eina 11 ára stelpu og aðra 8 ára og hver veit hvað hann er að gera þeim!
Líf þessarar stúlku er algjörlega í rústi núna, hún á eftitt með að sofa, getur ekki verið í skóla né sambandi!
Hún fékk engar skaðabætur og gengur þessi maður laus núna eftir þetta allt!

Er þetta ekki orðið sjúkt?
Ég veit það að þetta er að gerast alls staðar á landinu og útí heimi en hvað er hægt að gera hellingur að ungum stelpum eru að lenda í þessu!
Hvað er hægt að taka til málanna?

KV. Rassálfurinn
Hakúnamatata…