Í tilefni af korki sem skrifaður var um það hvort ætti ekki að banna fólk sem talar um að drepa ketti og svona á áhugamálinu Kettir datt mér í hug að finna eitt stykki grein á þessu áhugamáli og taka saman nokkur svör frá kattahöturum og kattahatara-höturum…

Eftirfarandi tilvitnanir eru flestar eftir kattahatara-hatara en tvær þeirra eru eftir kattahatara. Getur þú fundið þær?

<b>RjodBabe: “Ef ég vissi hver hefði skotið grey köttin
væri ég búinn að skera úr honum heilann!!!!!”</b>

<b>Thrasher: “Hvet alla sem verða vitni af dýraofbeldi að ganga upp að gaurnum sem gerði það og buffa hann.”</b>

<b>DarkOli: “Ég sæki um byssuleyfi um leið og ég hef aldur til og fæ mér eitt stykki loftriffil, og þá verður sko skotið á færi í mínum garði.”</b>

<b>vortex: “Ég kemst að því hver þú ert og ég mun brjóta á þér alla fingurnar áður en þú getur reddað þér byssu. Og sjá til þess að þú munir aldrei geta beitt þeim. Sker þá kannski af.”</b>

<b>Zorms: “Helv**** $W%/%%#&#%$&#%&$&#$#&$%%Y”$%&%Y$
Brennum hann/hana á báli sem skaut köttin &&“%&”$#“&#”&#/&& >(“</b>

<b>Mental: ”Þeir sem að skjóta á ketti eiga skilið að vera drepnir hægt með tannstöngli, og ég meina það!“</b>

<b>Enj1: ”Það er svo gott veður í dag að ég gæti vel hugsað mér að skjóta þessa andskota og svo grilla þá bara.“</b>

<b>Glaurung: ”Jæja, gerðu þér bara stóran greiða þegar að þú færð leyfið, og notaðu rifilinn á sjálfan þig“</b>

<b>Zorms: ”Sá sem skaut köttin á að deia á hrottafeingin hátt og hér með óska ég honum þjáningafulls dauðdaga!!! >(“</b>

<b>Deemer: ”mér finnst að það ætti að leyfa gaurnum að finna fyrir því sem kisna fékk að upplifa >:(“</b>

<b>zxcv: ”DarkOli farðu og skjóttu þig“</b>

<b>zxcv: ”Svo ef systir þín labbar í garðinn minn kem ég með loftriffil og skýt hana í hausinn“</b>

<b>zxcv: ”Hálfvitar eins og þú eru líka plága og ég legg til að þið verðið réttdræpir.“</b>

<b>Abbeyroad: ”Dreamon: Mig langar ekkert heitar en að myrða þig.“</b>

<b>Deathrock: ”Ég skal segja þér það ef ég kæmi að einhverjum að hrylla minn kött(kasta í hann steinum, eða annað ósæmilegt). Þá gæti viðkomandi varla lifað sig gegnum daginn sökum píningar og kvalarfulla sársauka.
Ég myndi svoleiðis lemja hann í spaðið að enginn myndi þekkja hann er ég hefði lokið mér af.“</b>

<b>BruskR: ”DarkOli, Veistu ef þú snertir kött eða meiðir hann eitthvernveginn þá mun ég komast að því hver þú ert hvar þú átt heima og berja þig.“</b>

Ég veit ekki með aðra en ég hef aldrei séð jafn mikið af líkamsmeiðinga-, dráps-, barsmíða- og morðhótunum á einum stað, og það ”fyndna" er að þetta eru flestir kattahatara-hatarar sem láta þetta út úr sér. Ég legg til að þeir kattahatarar sem töluðu um að þeir ætluðu að drepa ketti sem labba í garðinum sínum verði bannaðir, og að þeir kattahatara-hatarar sem hótuðu öðrum manneskjum líkamsmeiðingum og morðum verði að sjálfsögðu einnig bannaðir.

Zedlic<br><br>

…og að lokum legg ég til að Karþagó verði lögð í eyði