Þú saklausi afkomandi konungssvikara sem lest þessi orð mín.

Leggðu til hliðar tilfinningar og fordóma, opnaðu hugan og hugsaðu rökrétt andartak.

Lífskjör í Danmörku eru margfallt betri en á Íslandi!

Þar er betra velferðarkerfi og mikið betra að lifa!!!

Laun eru mun hærri þar almennt, eins og sá urmull Íslendinga sem þangað hefur flúið í leit að betra lífi veit best!!!!!

Ég skilaði auðu í þessum kosningum, hvað með þig?! Í Danmörku eru alvöru stjórnmálamenn, menn athafna en ekki aðeins orða!!!
Ég styð framboð konungssinna til alþingis!!!!!!!!!!!

DEJLIGT LÍF, DEJLIGIR TÍMAR!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Dæmum ekki Dani af fyrri verkum þeirra, horfumst í augu við staðreyndir!

Íslensk pólítík er ömurleg og sérstaklega þá stjórnarandstaðan, svo ekki er umbóta von frá þeim.
Danir hins vegar rúla eins og börnin segja og það væri betra fyrir okkur öll að þeir rúluðu bara yfir okkur aftur!

Ég viðurkenni með stollti að blátt danskt blóð rennur í mínum æðum og ég get ratið ættir minnar til danskra aðalsætta frekar stutt aftur í tíman. En þið hin hafið nú mörg danskt blóð líka, ekki satt? Ertu þá ekki Dani á þinn hátt? Afhverju ekki að vera ein þjóð þegar við erum hvort sem er frændur? Eitt blóð rennur um hjörtu okkar verum því ein þjóð, Danir og Íslendingar! Sameinumst!

Styðjum framboð konungssinna til alþingis næst!

Látum ekki lengur íslenska stjórnmálamenn komast upp með að fara illa með okkur. Hlustum ekki á vælið og veinið í stjórnarandstöðunni sem svíkur og prettar. Hlustum á Dani því þeir hafa sannað sig!
Þeir hafa látið verkin tala!

Ef aðeins við hefðum aldrei svikið frændur vora myndum við njóta sömu lífskjara og Danir nú! En við getum snúið við frá villu vegar okkar!!!!!!!!

Danir myndu ekki segja nei við fiskimiðum okkar, sem hvort sem er eru í höndum örfárra gráðugra kvótakónga!!!!!

Ekkert gefa kvótakóngarnir okkur í staðinn fyrir fiskinn okkar!!!!

En Danir myndu færa okkur velferð, stöðugleika og aukið ríkidæmi.

Sál okkar er þegar sú sama, Dana og Íslendinga, svo enginn er að selja neitt. Það er engu að tapa! Láttu skynsemina ráða, styrktu flokk konungssinna.


Baráttukveðjur með ósk um dejliga tíma héðan frá Kaupmannahöfn!

Þinn brottflúni landi,

Strikið.