Fram, þjáðir menn í þúsund löndum,
sem þekkið skortsins glímutök!
Nú bárur frelsins brotna á ströndum,
boða kúgun ragnarök.
Fúnar stoðir burtu vér brjótum!
Bræður! Fylkjum liði í dag -
Vér bárum fjötra en brátt nú hljótum
að byggja réttlátt þjóðfélag

Þó að framtíðin sé falin,
grípum geirinn í hönd
Því Internasjónalinn
mun tengja strönd við strönd

Á hæðum vér ei finnum frelsi,
hjá furstum eða goðaþjóð;
nei, sameinaðir sundrum helsi
og sigrum, því ei skortir móð.
Alls hins stolna aftur vér krefjumst,
ánauð þolir hugur vor trautt,
og sjálfir brátt vér handa hefjumst
og hömrum meðan járn er rautt

Þó að framtíðin sé falin
grípum geirinn í hönd,
því Internasjónalinn
mun tengja strönd við strönd

Vér erum lagabrögðum beittir
og byrðar vorar þyngdar meir,
en auðmenn ganga gulli skreyttir
og góssi saman raka þeir
Nú er tími til dirfsku og dáða.
Vér dugum, - þiggjum ekki af náð!
Látum bræður því réttlætið ráða,
svo ríkislög vor verði skráð

Þó að framtíðin sé falin
grípum geirinn í hönd,
því Internasjónalinn
mun tengja strönd við strönd

<br><br><font color=“#808080”>-[ <a href="http://www.hallig.tk">hallig.tk</a> ]-[ What if this war would end tomorrow. Isn't that worth fighting for? Isn't that worth dying for..? ]-</font>

<b>X-<font color=“#B52E31”>S</font></b>
<i>“..það er tími til kominn að henda þeim út,
um hálsinn berum við rauðan klút.
Hendum þeim fyrir hundanna!
Látum þá drekka hland,
og hér mun rísa fyrirmyndarland..”</i> - <b>“Spillingardans” eftir Dúettinn Plató. </b>

Tækifærið er núna!
<b><font color=“#B52E31”>•</font><font color=“#808080”>|</font>Samfylkingin</