Nördar er sá þjóðflokkur sem ég hata hvað mest.
Það viðurkennir náttúrulega enginn að hann sé nörd, en þeir vita það sjálfir. Það eru gaurar sem spila Counter Strike, dýrka Star-Trek, horfa á japanskar teiknimyndir (manga eða eitthvað) og vita ekki hvað kvenfólk er. Ég fór “over to the dark side” í einn dag og prófaði Counter Strike hjá bróður vinar míns. Ágæt stemmning að drepa nokkra, (fyrir þá sem ekki vita er þetta 1. persónu stríðsleikur, drepa aðra sem spila online), þar eru gaurar sem gera greinilega ekkert annað en að spila þetta og spila sig sem svakalega töffara. Skrifa message til manns: Thu er omurlegur, a eg ad berja tig nidri a Hlemmi a eftir. Maður skelfur eins og skólastelpa sem sér svart tippi…..ehhh….nei.
Og svo skrifa þeir aldrei heil orð, eða setningar. Ég ætlaði aldrei að skilja kmr, hugsaði um allar skammstafanir sem voru hugsanlegar, en þetta þýddi “kemur”. Já og nördar eru latir líka, það tekur greinilega of langan tíma að bæta við e og u í þetta orð. Hér kemur setning sem gæti birst: Kmr mar, n00binn var gegt ad campa, wtf. Þetta er þýtt yfir á íslensku: Kemur maður, nýliðinn (newbie sagði nördinn sem ég spilaði hjá) var geðveikt að campa (standa á sama stað og bíða) og svo kom What The Fuck.
Ég nenni ekki að skrifa um Star-Trekkara, ég skora á alla sem þora að horfa á einn þátt af þessu og reyna svo að skilja hvernig nördar nenna að horfa á heilar kvikmyndir af þessu kjaftæði. Mér sýnist þessir þættir snúast meira um vélabilanir heldur en einhvern söguþráð. Captain, check out the discombobulator machine if we are going to be able to get out of this mess. Eða eitthvað svona crap. Ef maður væri viðgerðarmaður hjá NASA, þá mætti maður horfa á þetta.
Japanskar teiknimyndir, halló ! Kellingar með 3 augu og litlar skólastelpur í stuttum pilsum að drepa skrýmsli. Ég sá einhvern tímann einhverja japanska mynd sem hét Akira (I would prefer Shakira naked in bed with a dwarf). Leiðinlegt sull.
Svo var ég í heimsókn hjá vini mínum sem leigir með nörda-frænda sínum. Hann er talinn meistari í sjálfsfróun sá nörd, ein af uppáhaldsiðjum nörda. Vinur minn sýndi mér tölvuna hjá honum. Við gáðum (eins og þroskuðum tvítugum gaurum sæmir) hvort hann væri ekki með klám á tölvunni. Við fundum nokkur videó.
ALLT JAPANSKT TEIKNIMYNDAKLÁM ! Eitt vídeóið sýndi stelpu vera að nauðga annarri stelpu…..MEÐ GEISLA ÚR P**UNNI!
Kannski er ég svona out of touch að finnast þetta ekki vera
turn-on eða þá að nördinn er alveg að skíta á sig í hausnum.
Svo ætluðum við að kíkja á huga.is og skrifuðum þá www.h til að byrja með, þá kemur listi af því sem nördinn hafði skoðað sem byrjaði á www.h, sem auðvitað var allt klám, við skrifuðum að gamni www. og svo allt stafróið, og viti menn, ALLT KLÁM ! ! !
Meira að segja voru fimm síður sem byrjuðu með www. og svo tölustaf.
Nördar eiga kannski eftir að uppgötva hitt kynið, ef þeir gera það ekki fyrr en eftir tvítugt, þá eiga þeir litla möguleika. Þeir verða þá út-úr-rúnkaðir og með kynlífsfantasíu sem inniheldur konu(helst í skólabúning með 3 augu), skrifborð, heftara og geislasverð, og konan verður að öskra “save me Luke Skywalker !”

Takk fyrir að hlusta á þetta, ég varð bara að koma þessu frá mér!