Áðan var ég að skoða bækling frá Expert, ég var að borða og helvítis sorpið lá þarna á borðinu fyrir framan mig þannig að ég fletti honum, og eitt sem mér fannst alveg SVAKALEGA skrítið. Einkunarorð þeirra er “Ódýrt og góð þjónusta” svo aftast í bæklingum var þvílík umfjöllun um Viðgerðarverkstæðið þeirra… sem sagt, hugmyndin sem ég fékk eftir að hafa lesið þennan bækling er… Expert selja ódýrt Rusl sem bilar og þá þarftu að fara með það á verkstæðið þeirra… merkilegt að fyrirtæki séu farin að auglýsa hversu mikið drasl þeir séu að selja…<br><br>————–
It's a small world, but I wouldn't want to paint it…
————–