Ég var einu sinni á föstudagskvöldi að fara í bíó þegar ég sá þennann mann niðri í bæ sem var að betla. Ég gekk að honum og spurði hvað hann væri að gera hann sagðist vera að betla peninga fyrir flugvél til Hawai. Mér fannst þetta frekar fyndið en ég gaf honum 250 kr. (átti ekki meira í klinki !) og þá bara brjálaðist hann og stóð upp og hótaði að berja mig. Ég var ekkert hræddur fyrst og spurði af hverju hann væri svona reiður þá sagði hann að hann þyrfti 257. En eftir circa 2.minútna samtal gat ég ekki útskýrt það að ég átti ekki meira en þennann skitna 250 kall, en nei nei þá næer hann í skrúflykil og sagði nmér að koma með 7 krónur í viðbót. Þá fyrst var ég orðinn hræddur og sagðist ætla leita að 7 krónum í víðbót og gefa honum. Og svo fann ég eitthvað klink og gaf honum það og hljóp í burtu skíthræddur! Ég veit ekki hváð þetta var mikill peningur en skiptir ekki málim, ég komst í bíó óhultur !

Takk fyrir.