Ég hef tekið alveg svakalega mikið eftir því hvað margir segja “víst” í staðinn fyrir “fyrst”

Dæmi: “Víst þú ætlar að láta svona þá er ég farinn”

Rangt!

Rétt er að sjálfsögðu “Fyrst þú ætlar að láta svona þá er ég farinn”

Þetta fer alveg gríðarlega í mínar allra fínustu, svipað mikið og “ég vill”, “sjáumstum”, og fleira og fleira..

Eflaust eru einhverjir litlir bitrir Hugarar sem eiga eftir að rembast við að hrauna yfir mig, ég bíð spenntur. <br><br><i>“Bandaríkin ERU FULLKOMNASTA og þróaðasta ríki veraldar, undir forystu snillingsins og konungsins George W Bush.
Hann er valdið og hann er drotnarinn.”</i>

-Geðsjúklingurinn og Hugarinn NickCarte