Á síðustu þremur vikum hafa tvær rörasprengjur verið sprengdar fyrir utan heimili tveggja kennara í Reykjanesbæ. Samkvæmt heimildum olli önnur sprengjan talsverðu eignartjóni. Tveir 16 ára unglingar eru grunaðir um verknaðinn en að minnsta kosti annar þeirra heldur úti vefsíðu þar sem listi yfir skotmörk er birtur og samkvæmt listanum eru skotmörkin fjögur talsins. Á vefsíðunni er einnig að finna nákvæmar upplýsingar um gerð rörasprengja og uppskriftir að sprengiefni.

Á vefsíðunni, sem er vistuð hjá vinsælum íslenskum vefþjóni kallar annar hinna grunuðu sig íslenskan nasista.