OK Mér datt í hug að það væru kannski fleiri í vandræðum en ég þannig að ég skelli bara einni grein hérna á forsíðuna :)

Ég hef reyndar nokkru sinnum reynt að senda fyrirspurn til vefstjóra en aldrei fengið svar. Er netfangið ekki vefstjori@hugi.is?

Það stendur: Þú átt eftir að stilla hvað þú hefur mestan áhuga á í stillingarkubbinum. Smelltu hér til að stilla. Og ég gerði það. En svo reyni ég að klikka á takkan með þarna fjórum örvum alla í sitthvora áttina, en þá gerist ekkert. Hvað er ég að gera vitlaust?
Hvað á ég að gera?

Svo er ég líka í vandræðum með að senda myndir inn með grein. Það stendur: Senda inn mynd með grein?: og ég klikka þar inn, en svo gerist ekkert. Ég prófaði einu sinni að klikka í reitinn og senda síðan myndina í gegnum… Myndir - valmöguleikan. En allt kom fyrir ekki :-þ

Ef einhver gæti hjálpað mér, þá væri það alveg frábært :)

luv,
Fairy