Jæja, núna í dag rölti ég í hlýindunum upp á Efstaleiti, og skilaði inn undirskriftalistanum prentuðum á blað, samtals ellefu blaðsíður. Ég átti innihaldsríkt samtal við konuna í móttökuni um gildi nútímabarnaefnis, við vorum greinilega á sama máli um skemmtanagildi pókemons. En, því miður náði ég ekki málinu lengra en í móttökunni, undirskriftirnar verða sendar til….einhvers náunga sem ég man ekki nafn né stöðu á. Nú er bara að bíða og vona…<br><br><a href="http://www.hvurslags.blogspot.com">Vits er þörf
þeim er víða ratar;
dælt er heima hvað.
Að augabragði verður
sá er ekki kann
og með snotrum situr.

<i>Hávamál</i></a