Ég er sko búinn að sjá það að lang besti kostur okkar íslendinga er að fá Leoncie sem forseta.

Ekki bara að hún sé HEIMSFRÆG og er með aðdáendur út um allann heim og hinar og þessar Erlendar sjónvarps stöðvar séu bankandi uppá hjá henni í tíma og ótíma til þess að fá viðtal við stjörnuna,
heldur er hún líka hinn mesti harðjaxl þegar kemur að því að eiga við graðnagla eins og hann Geira with his dick hard (Sinatra wannabe) og hina þekktu Kjartansson brothers Mafíu sem að eru sko engin lömb að leika sér við.

En hún tekur þessa kalla og hakkar þá í sig í séð og heyrt og þeir sjá sér ekki annað fært en að koma heim til hennar og biðjast afsökunar á framferði sínu og fara svo eins og barðir hundar með skottið á milli lappanna ýlfrandi í burtu og hún stendur eins og valkyrja í dyrunum sperrt og steytir hnefann að þeim.

Þannig að hún væri sko ekki í miklum vandræðum með að taka í hnakkadrambið á Davíð eða einhverjum öðrum í ríkisstjórninni ef að þeir væru með uppsteit,
að ég tali nú ekki um ef að það komi einhver erlendur diplomat og fer að rífa kjaft þá myndi Valkyrjan spretta upp og spenna fram brynjuna sína og kveða þá svo í kútinn að við fengjum helmingi betri viðskipta samninga við það land því það stenst enginn hennar hvassa augnatillit og óaðfinnanlegu röksemdar færslu,
og ef að þeir ætluðu að harka af sér og svara á móti þá bráðna þeir fljótt yfir hinni Svakalegu fegurð sem að Leoncie hefur að bera og yrðu sem smjör í höndum hennar.

Og svo má ekki gleyma að hún væri Lang Besta landkynningin fyrir okkur maður getur bara séð það fyrir sér ef að hún væri til dæmis í opinberri heimsókn í Englandi Tony Blair myndi ekki sjá sólina fyrir henni og svo þegar hún hittir Drottninguna þá gæti hún tekið lagið fyrir hana sungið eitthvað af hennar mörgu Super Box office Mega Smash Hits eins og td Viktor sem að er svo vinsælt hjá unglingunum eða Sexy loverboy eða bara eitthvað af hennar Frábæru lögum og svo yrði það náttúrulega sýnt á Öllum bresku sjónvarps stöðvunum og þá fyrst færum við að sjá almennilegann túrisma hér á landi öll hótel upp pöntuð tjaldstæðin full af brosandi Englendingum komnir til þess að reyna að sjá Goðið sitt þá ekki væri nema glitta í hana í Forseta bílnum þar sem að hún ekur hjá og veifar almúganum.

Já góðir Íslendingar það er kominn tími til að setja alvöru manneskju á Bessastaði sem að er ekkert gerfi mannsekja kemur bara til dyra eins og hún er klædd og af Guði gerð.

Kjósum Leoncie til Forseta.

Runne