Jæja, jæja. Loksins koma blessuð jólin. Nú eru 7 dagar, 17 klukkustundir og 40 mínútur í að jólin gangi í garð. Vonandi hafa allir til einhvers að hlakka. Það er svo margt sem er hægt að vera þakklátur fyrir og þakka guði þetta góða ár, vonandi eitt af mörgum. En það sem ég er þakklátastur fyrir í augnablikinu er að prófunum er að ljúka. Ég er í menntaskóla og seinasta prófið er á morgun/(dag). Þar sem ég fékk enga vinnu þá mun ég eiða jólunum í allskonar stúss, s.s. að rölta um í bænum og rápa í búðir, leika við litla bróður sem er núna ný orðinn 5 mánaða og bara hafa það gott. Vonandi hafiði það öll gott um jólin og sjáumst heil á nýju ári!

Kv. Bose