Könnunin er soldið sniðugt, síðast þegar ég sá hvar fólk stæði var 49% á móti 51% =).
Og, elskið þið ekki þegar hellingur af kennurum er veikur í skólanum og þið fáið fullt af fríi? =)
Fæ frí í 3 tímum í dag, var búinn í síðasta tíma klukkan u.þ.b 11:10, þarf að mæta aftur 13:10, og verð til 13:50, svo er skólinn búinn í dag hjá mér! =)<br><br>——————————
Voru ekki allir orðnir leiðir að sjá alltaf bara dæmi um visku mína hérna? Ég get líka verið fyndinn, sko:

Það voru einu sinni þrjú svín sem fluttu… eða var það bara eitt þeirra? Já, eitt flutti, útaf því að annar grísin, sem var líka að flytja, hafði leyft, kærustunni sinni.. nei, mömmu sinni.. eða var það fyrsti grísinn? Allavegana, þá sagði fyrsti grísinn:… nei, það var annar, sem sagði.. uhh: “Ef að ég á að flytja, þá verður þú”.. eða var það fyrsti?
Var ekki þriðji grísinn í einhversskonar pokahlaupskeppni? Já, mamman sagði : “fyrst þú ert að flytja, þá ætti pabbi þinn”…
man ekki meira, allavegana, hann var örugglega.. vonandi…. kannski..
fyndinn..
Hvernig fannst ykkur brandarinn? Fannst ykkur ekki fyndið þegar þriðji grísinn datt í brunninn? Eða var það úlfurinn….
——————————

Ef að heilinn væri nógu einfaldur til að við gætum skilið hann værum við of heimsk til að skilja hann!
_____________________________

Hugrakkasti stríðsmaðurinn er sá sem færir frið.

_____________________________

Hver veit, kannski er ég gáfaður, fyndinn og LÍKA sætur! =)
—————————–