Ég veit ekki með ykkur, en ég hef tekið eftir því að núna upp á síðkastið snýst allt um okkur stelpurnar og hvernig á að fullnægja okkur. Það er eins og við höfum gleymt strákunum. Margar halda að þeir þurfi bara að stinga honum inn og á þá eru þeir sáttir. Svo mig langaði aðeins að kommenta að ef stelpur fullnægja strákum vel, þá fáum við það launað margfalt til baka, auðvitað þurfum við bæði að læra inn á hitt kynið, en margar stelpur hugsa oft bara um sig, og gera ekkert annað en að kvarta að kærastinn þeirra sé ekki nógu góður. Ég lenti einu sinni í svoleiðis gaur, sem kunni ekki til verka, en þá tók ég mig til, og gerði ótrúlegustu hluti, og ég hef aldrei fengið eins mikið úr kynlífi eins og með honum. Þegar þeir eru ánægðir þá borga þeir það margfalt til baka.
Mig langar líka að mæla með einni bók sem hjálpaði mér mikið en hún heitir 203 ways to make man wild in bed, og hún snar virkar.